20. janúar 2010 09:49
36 ára gamalt Borgarfjarðarmet í sundi féll um helgina
Tveir sundmenn frá UMSB þeir Jón Ingi Sigurðsson og Alexander Gabríel Guðfinnsson kepptu í sundi á Reykjavík International Games um helgina í flokki 15 ára og eldri. Um 100 erlendir sundkappar tóku þátt að þessu sinni og fjölmargir Íslendingar. Af erlendum sundmönnum má t.d. geta Alexanders Dale Oen sem að er silfurverðlaunahafi í 100 bringu á OL í Peking.
Strákarnir okkar stóðu sig vel og voru að bæta fyrri tíma sína umtalsvert. Í 100 metra skriðsundi bætti Gabríel tíma sinn um rétt tæpar 3 sek. sem er mjög gott á ekki lengri vegalengd.
Jón Ingi bætti Borgarfjarðarmet Jóns Vals Jónssonar frá árinu 1987 í piltaflokki í 100 m. bringusundi og í leiðinni bætti hann met Ágústs Þorsteinssonar um tæpar 4 sek.í karlaflokki um sem að hann setti árið 1974. Jón Ingi varð í 11. sæti sem að verður að teljast harla gott þar sem að hann er á yngsta ári í opnum flokki. Í 50 m bringusundi bætti hann met Sveins FlókaGuðmundssonar í pilta og karlaflokki og í 50 m baksundi bætti hann sitt eigið Borgarfjarðarmet. Jón Ingi náði í úrslit í fleir sundgreinum en varð frá að hverfa vegna veikinda.
Þannig að sundárið byrjar vel hjá strákunum í sunddeildinni.