27. október 2009 12:10

Góður árangur á Stórmóti SH um helgina og 3 Borgarfjarðarmet bætt

Fimm sundmenn úr Skallagrími, þau Filippía, Kári Jón, Agnar Daði, Jón Ingi og Gabríel tóku þátt í Stórmóti SH í Hafnarfirði um helgina og voru að bæta flesta tíma sína töluvert.

Jón Ingi Sigurðsson, 14 ára, bætti 20 ára gamalt Borgarfjarðarmet 

Hlyns Þórs Auðunssonar í 200 m. skriðsundi um rúmar 4 sekúndur

 

 

synti á 2.14,00 hann bætti einnig eigið Borgarfjarðarmet í 100 m. fjórsundi og 50 m. bringusundi um 3 sek. hvort met og synti til bronsverðlauna í 50 m bringusundi en keppt var í opnum flokki.

Sannarlega góð byrjun á sundtímabilinu hjá krökkunum. 

Senda á Facebook
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes