30. júní 2009 11:19

Fjögur silfur verðlaun heim frá AMÍ

Fjórir sundkrakkar úr skallagrím þau Jón Ingi Sigurðsson, Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir, Agnar Daði Kristinsson og Kári Jón Sigurðsson fóru til Akureyrar um síðustu helgi til að keppa á AMÍ Aldursflokka-meistaramóti Íslands. Áhveðinn lágmörk þarf til þátttöku á mótinu.

Jón Ingi tók þátt í fimm greinum á mótinu og kom heim með fjögur silfurverðlaun.  Í tvöhundruð metra fjórsundi lenti hann í fjórða sæti.  Í eitthundrað metra bringusundi varð hann í öðrusæti. Í tvöhundruð metra baksundi varð hann öðrusæti. Í tvöhundruð metra bringu varð hann í öðrusæti og í eitthundrað metra baksundi lenti hann einnig í öðrusæti. Sannarlega glæsilegur árangur það. Jón Ingi er klárlega með bestu sundmönnum á landinu í sínum aldursflokk.

Þau Þórkatla sem synti í fimm greinum , Agnar sem synti í fjórum greinum og Kári sem synti í tveimur greinum voru einnig að synda mjög vel þó þau ekki hafi komist á verðlaunapall í þetta sinn. Það er ákveðinn sigur að komast inn á þetta mót og keppa við þá bestu af landinu.

Hægt er að nálgast þær greinar sem krakkarnir tóku þátt í hér

Hægt er að nálgast úrslit af mótini á þessari slóð hér

 

KÓS
Senda á Facebook
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes