10. mars 2010 22:12
Íþróttamaður Borgarbyggðar og Íþróttamaður Borgarfjarðar
Á dögunum fór fram útnefning Íþróttamanns Borgarbyggðar og voru þrír sundmenn tilnefndir frá Skallagrím en það voru þau Þórkatla, Gabríel og Jón Ingi og var Jón Ingi útnefndur Sundmaður Borgarbyggðar fyrir árið 2009.
Einnig hlaut hann Minningarbikar Auðuns Hlíðkvists Kristmarssonar en hann er veittur unglingi í 9. bekk sem að stendur sig vel í íþróttum og námi og er góð fyrirmynd fyrir aðra krakka og unglinga.
Síðustu helgina í febrúar, á Íþróttahátið UMSB, fór síðan fram útnefning Íþróttamanns UMSB og var Trausti Eiríksson valinn Íþróttamaður UMSB og Jón Ingi í 2. sæti og SIgurður Þórarinsson í því 3ja. Ennfremur varð Þórkatla í 6.sæti. Flott að eiga tvo sundmenn í efstu sætum þessarar útnefningar.