9. desember 2011 11:31

Norðurlandameistaramót unglinga í sundi

Nú um helgina fer fram Norðurlandameistaramót unglinga í sundi. Borgnesingurinn Jón Ingi Sigurðsson var valinn til að keppa fyrir Íslands hönd í 100 og 200 m.baksundi, 200 m. fjórsundi og 200 m. bringusundi. Hægt er að sjá upplýsingar um mótið og bein úrslit á þessum link http://www.sundsamband.is/?ib_page=897&iw_language=is_IS

meira...
8. desember 2011 01:07

Friðarjós fyrir jólin

 Sunddeild Skallagríms selur Friðarljós frá Hjálparstofnun kirkjunnar eins og undanfarin ár. Kertin eru framleidd hjá Heimaey, vernduðum vinnustað.

meira...
19. október 2011 04:17

Jón Ingi með sundmetaregn í september

Sundárið byrjar vel hjá Jóni Inga Sigurðssyni (16) UMSB en hann hefur æft með ÍA frá því í haust. Jón Ingi byrjaði sundtímabilið af krafti  með því að bæta Borgarfjarðarmet í bæði pilta og karlaflokki í 50 m. flugsundi í 25 metra braut sem Ragnar Freyr Þorsteinsson setti 1987 og í 100 m. flugsundi sem að Jón Valur Jónsson setti sama árið.

Á TYR móti Ægis bætti hann síðan fjölmörg met í pilta- og karlaflokki 

meira...
28. júní 2011 01:51

Jón Ingi tvöfaldur aldursflokkameistari í sundi

Aldursflokkameistaramót Sundsambands íslands (AMÍ)var haldið dagana 23.-26.júní á Akureyri. Tveir keppendur tóku þátt frá UMSB en það voru þeir Jón Ingi Sigurðsson og Helgi Guðjónsson.

Jón Ingi keppti í 6 greinum og kom heim með tvö gull og þrjú silfur. Hann sigraði í 100 og 200 m. bringusundi í aldursflokki 15-16 ára og bætti þar með 22 ára gamalt Borgarfjarðarmet Sigurðar Guðmundssonar í 200 m. bringusundi í piltaflokki um tæpar 9 sekúndur og synti á tímanum 2:28,83 og einnig bætti hann met Sigurðar í karlaflokki en það met er síðan 1996. 

meira...
3. júní 2011 10:24

SUNDNÁMSKEIÐ FYRIR 7-9 ÁRA

 

í sundlauginni í Borgarnesi fyrir 7-9 ára krakka (árgangur 2002, 2003 og 2004)

Námskeiðið verður 2 x í  viku frá 8. júní til 1. júlí (7 skipti)

Kl. 10.30-11.15 á miðvikudögum og föstudögum.

 

meira...
11. maí 2011 05:45

Sundnámskeið fyrir börn fædd 2005 og 2006

 


Fyrir 5-6 ára börn (fædd 2005 og 2006)

Kennt verður 3x í viku í 3 vikur

16. maí – 3. júní

mánudaga, miðvikudaga  og föstudaga 

Klukkan 16:00, 16:30, 17:10 og 17:45

                     Kennari  er Helga J. Svavarsdótir, sundkennari

Skráning í sundlauginni,  á netfangið helga@grunnborg.is eða í síma 8611661 (eftir kl. 16)

Verð kr. 4500,-


 

meira...
1. maí 2011 04:28

Jón Ingi vann gull í Lúx

Í gær synti Jón Ingi til gullverðlauna í 100 m. bringusundi í sínum aldursflokki. Hann synti sig síðan inn í 8 manna úrslit í 50 m. bringusund í flokki 20 ára og yngri. Þá varð hann í 2. sæti í 200 m. bringusundi í sínum aldursflokki í dag á tímanum 2:36,48 og bætti hann tímann sinn og þar með sitt eigið  Borgarfjarðarmet um 11 sekúndur!

Góður árangur hjá Jóni Inga í þessari fyrstu og vonandi ekki síðustu unglingalandsliðsferð.

 

hbg

meira...
30. apríl 2011 12:50

Fyrsti dagur í Lúx búinn

Nú er dagur 1 í Lúx búinn og er Jón Ingi að standa sig vel ásamt hinum Íslendingunum.

 Jón Ingi varð í 3. sæti í 200m fjórsundi þar sem hann bætti sig um 3 sekúndur og bætti um leið eigið Borgarfjarðarmet. Þá synti hann sig inn í undanúrslit í 50m baksundi og 50 m bringusundi.

 

HB

 

meira...
29. apríl 2011 10:55
15. nóvember 2010 09:43
10. mars 2010 11:11
4. janúar 2010 09:53
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes