Ársskýrsla Sunddeildar Skallagríms 2009

 

 

 

Stjórn Sunddeildar Skallagríms er skipuð Hafdísi Brynju Guðmundsdóttir sem er formaður, Gróu Erlu Rögnvaldsdóttir ritara, Álfheiði Marinósdóttir gjaldkera, Huldu Birgisdóttir meðstjórnanda og Sigurði Guðmundssyni meðstjórnanda.

Þjálfarar:

Guðbrandur Gunnar Garðarsson og Laufey Sif Lárusdóttir þjálfuðu eldri flokka og Garpa. Karen Svava Guðlaugsdóttir og Rakel Ösp Björnsdóttir þjálfuðu yngri flokka. Þá hafa Laufey Sif og Karen Svava leyst af og Jón Ingi Sigurðsson aðstoðaði með yngri flokka.

 

Árið 2009 fór vel af stað hjá Sunddeild Skallagríms og var gott keppnisár. Farið var á fjölmörg sundmót þar sem að keppt var undir merkjum UMSB og komu keppendur heim með margar viðurkenningar fyrir góðan árangur í sinni grein. Samtals voru sett um 70 ný Borgarfjarðarmet í sundi á árinu og var í mörgum tilfellum verið að slá 20 – 30 ára gömul sundmet. Ýmislegt var gert á árinu, farið í æfingabúðir, á mót og í skemmtiferðir og lögð til heilmikil vinna við fjáröflun fyrir deildina.

           Farið var í tvennar æfingabúðir á árinu með eldri flokk hér innanlands ásamt liðum frá Grindavík, Breiðablik og Aftureldingu. Farið var að Laugum í Sælingsdal í apríl og í október voru æfingabúðir haldnar í Þorlákshöfn fyrir þá sem að náðu vissu lágmarki í eldri hóp og var það tilraunaverkefni liðanna. Í æfingabúðum var tímanum skipt niður í þrek og sund og skiptust þjálfarar á með hópana og lærði sundfólkið okkar heilmikið í tækni. Einnig miðluðu þjálfarar af þekkingu sinni og reynslu hvor til annars.

Farið var á 13 sundmótmót á árinu auk innanhéraðsmóta. Lionsmótið var haldið í innilauginni í nóvember að venju og er það ætlað fyrir yngra sundfólk og er ávallt góð þátttaka liða frá öðrum félögum á þessu móti.

           Helstu stóru mótin voru; Reykjavík International, Gullmót KR, Bikarmót SSÍ þar sem að við skipuðum sameiginlegt lið með sunddeildinni í Grindavík, Sparisjóðsmót ÍRB,  Akranesleikar Olís, Aldursflokkameistaramót íslands (AMÍ), Unglingalandsmót UMFÍ, Stórmót SH og Íslandsmeistaramót í 25 og 50 m. laug svo eitthvað sé nefnt. Á flestum þessara móta voru sundmennirnir okkar að slá fjölmörg persónuleg met og 5 sundmenn úr Skallagrím komust á afrekaskrá Sundsambands íslands (SSÍ)  í samanlagt 27 sundgreinum, þar af 10 greinum  í 25 m. laug og 17 greinum í 50 m. laug. Af þessum 27 afrekum á Jón Ingi Sigurðsson (13-14 ára) 9 afrek í 25 m. laug og 14 afrek í 50 m. laug og á hann besta tíma ársins í 50 bak og 100 bringu.

           Um það bil sem sundæfingum lauk hjá yngri flokkum í maílok voru grillaðar pylsur í Skallagrímsgarði og farið í leiki. Einnig var farið í veiðiferð upp að Hreðavatni sem að Gróa Erla og hennar fjölskylda stóð fyrir. Veitt var í Hreðavatni og aflinn grillaður og snæddur á staðnum, farið í leiki og dagsins notið til fullnustu. Frábært lokahóf sem verður endurtekið í vor.

             Fjáröflun hjá Sunddeild Skallagríms var með ýmsu móti á árinu, svo sem þrif á anddyri Hyrnutorgs, kökubasarar, rækjusala, hreinsun tjarnarinnar hjá SPM, vörutalningar og lakkríssala. Þá var hin árlega friðarkertasala og jólapóstur á sínum stað í desember.         

             Sundæfingar byrjuðu aftur af fullum krafti í byrjun september í öllum flokkum undir stjórn Gunnars hjá eldri hópum og Görpum og undir stjórn Rakelar Aspar hjá yngri hópum.

                     

           Að lokum viljum við í stjórn sunddeildar Skallagríms þakka öllum fyrir gott samstarf á árinu 2009, sérstaklega sundfólkinu okkar, þjálfurum og foreldrum.

 

Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes