Tímatafla æfinga í Íþróttamiðstoð sjá hér
Tímatafla æfinga í Sundlaug sjá hér
Brottför á landsleik eftir lokahóf verður kl 16:45 frá Óðal.
Um helgina mun Skallagrímur taka æfingaleiki í Fjósinu, allir á pallana og taka strákana út.
Föstudagur
19:00 Skallagrímur vs Laugdælir
Laugardagur
12:00 Skallagrímur vs Laugdælir
14:00 Laugdælir vs Leiknir
16:00 Skallagrímur vs Leiknir
Badmintonæfingar hefjast aftur eftir sumarfrí mánudaginn 6. september. Þjálfari deildarinnar er Helgi Magnússon. Meðfylgjandi er tafla fyrir veturinn en hún mun verða endurskoðuð í byrjun október en það verða þó ekki stórvægilegar breytingar. Eins gætu tímasetningar breyst innan hópanna.
Allir velkomnir að prófa!
Nú er tímatafla fyrir körfuboltann kominn inná síðuna. Þessi tafla verður í gildi í september. Ef breytingar verða um mánaðarmótin verður það auglýst hér á síðunni og í íþróttahúsinu.
Sjá hér undir meira.
Hér má sjá í viðhengi nýja æfingartöflu taka skal fram að allar æfingar í september eru á grasvelllinum, eftir það verða æfingar á gervigrasi og inni í íþróttahúsi
Umf. Íslendingur stendur fyrir fótboltamóti þann 4. september 2010 á Sverrisvelli á Hvanneyri kl. 11:00. Skemmtiatriði og mótsslit fara fram í skjólbeltunum. Tilvalið að hafa með sér mat og drykk því heitt verður á grillinu.
Keppt verður í fimm aldursflokkum: 6 – 9 ára (2001 – 2004), 10 – 12 ára (1998 – 2000), 13 – 15 ára (1995 – 1997), 16 – 19 ára (1991 – 1994) og svo 20 ára og eldri. Keppt verður í 7 manna bolta og mega vera blönduð lið. Það verður möguleiki að skrá sig undir Ungmennafélögunum: Íslending, Dagrenningu, Reykdælum, Stafholtstungum og Skallagrím.
Skráning fer fram hjá Fjólu á fjola@emax.is fyrir miðnætti 30. ágúst og skráningargjald er 500 kr. fyrir hvern þátttakanda.
Athugið að Björn Sólmar tekur við skráningum fyrir iðkendur í yngri flokkum Skallagríms, Þátttaka tilkynnist á netfangið bjornsolmar@gmail.com
Hvetjið börnin til þátttöku, ekki þvinga þau, ánægja þeirra og áhugi er það sem máli skiptir.