15. janúar 2012
Þótt vetrarríki geri iðkendum knattspyrnudeildar erfitt fyrir er ekki hægt að segja að þeir liggi í dvala. Síðustu vikurnar hefur verið nóg að gera hjá 3.flokki karla.
Törnin hófst undir lok nóvembermánaðar þegar fyrsti leikur Faxaflóamótsins var leikinn. Breiðablik voru mótherjarnir og leikið var í Fífunni. Eftir erfiða og heldur stressaða byrjun náðust upp ágætir spilakaflar og náðu Skallagrímsdrengir að setja 3 mörk í fyrri hálfleik. Þeir voru þar með komnir á bragðið og aukið sjálfstraust gerði það að verkum að mörkunum rigndi inn í seinni háfleik. 9-1 urðu lokatölurnar og haldið upp á það að leik loknum ásamt foreldrum með ljúffengu pizzahlaðborði.
14. janúar 2012
Um nýliðin áramót hélt Knattspyrnudeild Skallagríms í fyrsta sinn áramótadansleik.
Var dansleikurinn haldinn í Menntaskóla Borgarfjarðar og sóttu hann um 300 gestir. Var húsið opnað klukkan 01 og skemmti hljómsveitin Ulrik gestum til rúmlega 04.
Var áramótadansleikurinn mjög vel heppnaður að öllu leiti og vill knattspyrnudeildin þakka öllum starfsmönnum og gestum fyrir frábæran áramótadansleik.
Stefnir knattspyrnudeildin að því að áramótadansleikur verði hér eftir fastur liður í starfi deildarinnar.
11. janúar 2012
Sigurkarl Gústavsson hefur verið ráðinn starfsmaður og yfirþjálfari yngriflokka Knattspyrnudeildar Skallagríms.
Knattspyrnudeild Skallagríms og Sigurkarl undirrituðu í dag samning um að Sigurkarl taki við starfi yfirþjálfara yngriflokka deildarinnar og hefur hann þegar hafið störf. Sigurkarl er ráðinn í fullt starf hjá deildinni og sinnir þjálfun og yfirstjórn yngriflokkamála auk þess að vinna að öðrum verkefnum fyrir deildina.
Knattspyrnudeildin lýsir yfir mikilli ánægju með að hafa fengið Sigurkarl til starfa. Hann hefur þjálfað yngriflokka deildarinnar um tíma og þekkir vel til starfsemi hennar. Sigurkarl hefur lokið þjálfaraprófum frá KSÍ og hyggur á enn frekari menntum í þjálfarafræðum. Með ráðningu Sigurkarls er tryggð sú festa í starfsemi deildarinnar sem nausynleg er. Ráðning hans undirstrikar einnig enn frekar þá áherslu sem deildin leggur á faglegt og vandað starf.
Stjórn Knattspyrnudeildar býður Sigurkarl velkominn til starfa og væntir mikils af starfi hans.
Fh. Knattspyrnudeildar Skallagríms
Kristmar Ólafsson
10. janúar 2012
Æfingar fyrir 8.flokk drengja og stúlkna munu halda áfram á laugardögum en með breyttum tíma. Í stað þess að hefjast handa klukkan 10:00 þá munum við prófa æfingu klukkan 13:00 til 14:00. Áherslur verða áfram þær sömu að krakkarnir læri að vera með bolta um leið og þau hreyfa sig og hafa gaman.
Með kveðju
Sigurkarl Gústavsson
Yfirþjálfari
3. janúar 2012
Æfingar knattspyrnudeildar hófust að nýju eftir jólafrí í dag 3. janúar samkvæmt tímatöflu.
Æfingar 8. flokks hefjast næstkomandi laugardag, 7. janúar kl 10:00.
Gleðilegt ár!
15. desember 2011
Iðkendur yngstu flokka Knattspyrnudeildar takið eftir!
Laugardaginn 17. Desember kl 10:00 verður jólasprell fyrir 8. 7. og 6. flokk karla og kvenna.
Förum í fótbolta og gerum fleira skemmtilegt undir dúndrandi jólatónlist, og mögulega óvæntar uppákomur.
Höfum gaman saman í aðdraganda jólanna!
12. desember 2011
Um þessar mundir býður Knattspyrnudeild Skallagríms jólakort til sölu.
Um er að ræða hluta af fjármögnun starfsemi yngri flokka deildarinnar, en iðkendur deildarinnar á aldrinum 4- 16 ára eru yfir 100 talsins.
Kortin sem um ræðir skarta fallegri vetrarmynd sem tekin er af Kristínu Jónsdóttur á Hálsum, KJ Photography.
Kortin eru seld 10 saman í búnti og kostar búntið 1000 kr. með umslögum.
9. desember 2011
Nú um helgina fer fram Norðurlandameistaramót unglinga í sundi. Borgnesingurinn Jón Ingi Sigurðsson var valinn til að keppa fyrir Íslands hönd í 100 og 200 m.baksundi, 200 m. fjórsundi og 200 m. bringusundi. Hægt er að sjá upplýsingar um mótið og bein úrslit á þessum link http://www.sundsamband.is/?ib_page=897&iw_language=is_IS
8. desember 2011
Sunddeild Skallagríms selur Friðarljós frá Hjálparstofnun kirkjunnar eins og undanfarin ár. Kertin eru framleidd hjá Heimaey, vernduðum vinnustað.
7. desember 2011
Fyrirlesturinn "Það fæðist enginn atvinnumaður" með Loga Geirs var haldinn þriðjudaginn 6. des fyrir fullum sal í Hjálmakletti.
Mikill áhugi var fyrir fyrirlestrinum, en alls voru 170-180 manns ungir sem aldnir saman komnir og ríkti almenn ánægja með lesturinn. Fjallaði Logi meðal annars um matarræði, sjálfstraust, hugarfar og markmiðssetningu ásamt því að svara spurningum úr sal.
5. desember 2011
Þriðjudaginn 6. desember bjóða Ungmennafélögin Skallagrímur, Íslendingur og Hestamannafélagið Faxi fólki að hlýða á fyrirlestur Loga Geirssonar "Það fæðist enginn atvinnumaður". Í fyrirlestrinum fer Logi yfir markmiðasetningu, mataræði, sjálfstraust, hugarfar og margt fleira sem vert er að huga að þegar við stefnum að ákveðnum markmiðum. Fyrirlesturinn sem verður í Hjálmakletti og hefst kl. 18.30 höfðar til allra aldurshópa og eru allir velkomnir!
Sjá auglýsingu hér.
11. nóvember 2011
Æfingartímar 7.fl. Karla breytast frá og með 11.11.11. Æfingar drengjana verða sem hér segir.
Þriðjudagar klukkan 15:30 - 16:20 íþróttahús Miðvikudagar klukkan 16:20 – 17:10 Íþróttahús Laugardagar klukkan 10:00 – 11:00 Gervigras
Með kveðju
Þjálfarar
Sigurkarl, Viktor og Birgir
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes