23. nóvember 2009 20:19
Leiklistarnámskeið 5.-6.desember
Leikdeild Skallagríms stendur fyrir leiklistarnámskeiði helgina 5.-6.desember. Kennari er Rúnar Guðbrandsson.
Námskeiðið verður haldið í Mími í kjallara Menntaskóla Borgarfjarðar. Kennt verður laugardag og sunnudag frá kl.9-17. Þátttökugjald er kr. 3.000.- og er hádegismatur innifalinn í verðinu báða dagana. Greitt er á staðnum.
ATH! Allir sem hafa áhuga á að taka þátt í uppsetningu með leikdeildinni eftir áramót eru eindregið hvattir til að mæta. Rúnar kemur til með að leikstýra hópnum þegar æfingar hefjast í janúar og þeir sem mæta á námskeiðið auka möguleika sína á því að fá hlutverk.
Skráning er hjá Hörpu á netfangið harpaei@simnet.is eða hjá Þresti í síma 848-9043.
Allir velkomnir!!!!