19. maí 2010 21:37
Ný stjórn mynduð á aðalfundi leikdeildarinnar
Á aðalfundi leikdeildar Skallagríms í mars urðu nokkur mannaskipti í stjórninni. Nýr formaður var kosinn, Rebekka Atladóttir, og er hún boðin hjartanlega velkomin til starfa. Jónas Þorkelsson, fráfarandi formaður, tók að sér stöðu gjaldkera en annars lítur ný stjórn út á eftirfarandi hátt:
Formaður: Rebekka Atladóttir
Gjaldkeri: Jónas Þorkelsson
Ritari: Harpa Einarsdóttir
Meðstjórnandi: Ása Dóra Garðarsdóttir
Meðstjórnandi: Nonni Gulli Guðbrandsson
Fráfarandi stjórnarmeðlimir eru Þröstur Reynisson og Ásthildur Kristín Júlíusdóttir. Þeim eru þökkuð vel unnin störf í þágu leikdeildarinnar.
Það er mikill metnaður og hugur í nýja formanninum okkar og öruggt er að leikdeildin mun stefna að því að láta meira að sér kveða á komandi misserum. Okkar markmið er að eiga öfluga leikdeild sem allir geta verið stoltir af.
Með kveðju,
stjórnin.