22. janúar 2012 10:15

Vilt þú borga minna fyrir bensínið?

 Nú er Orkan/Skeljungur orðinn einn af styrktaraðilum körfuknattleiksdeildar Skallagríms og í tilefni af því fá stuðningsmenn okkar sérkjör á bensíni og öðrum vörum frá Orkunni og Shell ásamt því að fá ýmiss tilboð og fríðindi á þessum stöðum. En þess má geta að Orkan opnar nýja bensínafgreiðslustöð við Stöðina (á Shellplaninu) í Borgarnesi núna í vor.

 

Til að geta nýtt sér þessi sérkjör þarf að vera með orkulykil frá Orkunni/Skeljungi en hann er í boði fyrir alla án nokkurra skuldbindinga og kostar ekkert!

 

Til að sækja um Orkulykilinn er best að fara á heimasíðu Orkunnar www.orkan.isog fylla út umsókn um Orkulykil, til að fá sérkjör Skallagríms þarf að setja Skallagr. í reit sem merktur er hópur. Einnig er hægt að fá Orkulykill með merki körfuknattleiksdeildarinnar, þá þarf að setja Skallagr/lógó í reitinn hópur á umsókninni. Þeir sem eru nú þegar með Orkulykil en vilja fá sérkjörin okkar geta haft samband við þjónustuver Orkunnar í síma: 578-8800 og beðið um þessa breytingu. Það er

Að sjálfsögðu verður einnig hægt að sækja um Orkulykilinn á næstu heimaleikjum Skallagríms.

 

 

 

Sérkjör stuðningsmanna Skallagríms

•      10 kr. afsláttur per líter í 5 fyrstu skiptin (bætist ofan á 5 kr. framkvæmda afsl. sem er hjá Shell í Borgarnesi núna, þannig að heildarafsláttur þar verður 15 kr. per líter í fyrstu fimm skiptin)

•      3 kr. afsláttur per líter hjá Orkunni

•      5 kr. afsláttur per líter hjá  Shell

•      5 kr. afsláttur per líter hjá Orkunni á Ofurdögum

            (Ofurdagar eru amk. 12 sinnum á ári)

•      10 kr. afsláttur á afmælisdegi lykilhafa

•      15-20% afsl. á bílatengdum vörum á bensínstöðvum Skeljungs og hjá samstarfsaðilum

•      Mánaðarleg sértilboð á Stöðinni

•      Hægt að greiða með lyklinum á Stöðinni

 

Bjarni Waage
Senda á Facebook
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes