Yfir erfiðasta hjallann
Knattspyrnudeild Skallagríms hefur á undanförnum árum haldið úti öflugu starfi með sérstaka áherslu á yngri flokka deildarinnar. Nú þegar harðnar á dalnum og erfitt er að ná fjármagni til starfsins eftir hefðbundnum leiðum er framtíð deildarinnar í mikilli óvissu.
• Á þessu ári stunda 120-130 krakkar á aldrinum 6 - 16 ára fótbolta hjá Skallagrími
• Á þessu ári renna um 90% af tekjum deildarinnar til reksturs yngri flokkanna. Leikmenn meistaraflokks fá ekki og hafa ekki í mörg ár fengið greitt fyrir að spila knattspyrnu.
• Á þessu ári hafa stórir styrktaraðilar ýmist hætt rekstri eða ekki getað endurnýjað styrktarsamninga. Ómögulegt hefur reynst að fá önnur fyrirtæki til að fylla skarðið, tekjur deildarinnar lækka því mikið.
• Á þessu ári verður erfitt að halda óbreyttri starfsemi áfram. Ef ekki tekst að ná inn auknum tekjum verður strax í haust að skera niður starfsemi fyrir börn og unglinga auk annarra aðgerða.
Við leitum því til ykkar lesendur góðir og biðjum þá sem aflögu eru að styrkja Knattspyrnudeildina um mánaðarlega upphæð í fyrirfram ákveðinn tíma. Upphæð styrksins og tímalengd er hverjum í sjálfsvald sett en munum að margt smátt gerir eitt stórt. Með sameiginlegu átaki tekst okkur þannig að koma deildinni yfir erfiðasta hjallann og tryggja áframhaldandi kraftmikið starf.
Ef óskað er eftir að upphæðin verði skuldfærð á kreditkort er nauðsynlegt að gefa upp símanúmer. Fulltrúi frá Knattspyrnudeild Skallagríms mun hafa samband og taka niður nauðsynlegar kortaupplýsingar.