|
Dagsmót
Mótið er sett upp sem dagsmót þ.e. það tekur eingöngu einn dag fyrir hvern flokk. Hér er því um þægilegt mót fyrir alla fjölskylduna að ræða sem gefur kost á að nota restina af helginni til annarra hluta. Við leggjum áherslu á að hafa mótið skemmtilegt og keppni um sæti verður stillt í hóf. Við teljum að úrslit leikja séu ekki aðalatriðið heldur það að allir hafi gaman af mótinu. Þannig verður, til að mynda, eingöngu leikið til úrslita um fyrsta sæti í hverjum flokki. Í leikjum um önnur sæti deila lið sæti ef jafnt er að loknum venjulegum leiktíma. Úrslit leikja verða ekki skráð með meira en þriggja marka mun o.fl. í þeim dúr.
Fyrir hverja
Mótið er opið öllum. Það er ætlun okkar að setja upp mót sem mætir kröfum fámennari félaga um jafna og skemmtilega keppni um leið og stærri félögum verður boðin þátttaka á sömu forsendum.
Þátttökugjald.
Þátttökugjald verður 2500 kr. á þátttakanda (óbreytt verð frá 2009). Innifalið í gjaldinu er CD diskur fyrir hvert lið með liðsmynd og myndum úr leikjum á mótinu, grillveisla í lok móts, samloka, ávöxtur og safi yfir miðjan daginn. Allir iðkendur fá þátttökuviðurkenningu auk þess sem prúðasta liðið verður valið í hverjum flokki. Þannig að segja má að þátttakendur fái mikið fyrir lítinn pening.
Dagskrá
Nákvæm dagskrá liggur ekki fyrir en stefnt er á að byrjað að keppa um kl. 10.30 og að keppni ljúki um kl. 19.00 hvern dag. Þessar tímasetningar ráðast reyndar af þátttöku og gætu breyst.
Nánari upplýsingar.
Upplýsingar um mótið veita Kristmar Ólafsson í síma 8989-250 í síma 695-1793. Fyrirspurnir má einnig senda á kristmar@simnet.is
http://www.skallagrimur.is/knattspyrna/
Þátttökutilkynningar
Þátttökutilkynningar fyrir stúlknamótin þurfa að berast í síðasta lagi 26. maí á netfangið kristmar@simnet.is
Þátttökutilkynningar fyrir drengjamótin þurfa að berast í síðasta lagi 20. júlí netfangið kristmar@simnet.is |