25. febrúar 2010
Skallagrímsbúningar og boltar til Úganda
Á haustmánuðum ákvað knattspyrnudeild Skallagríms að gefa börnum í Úganda Skallagrímsbúninga og bolta. Það var fyrir tilstilli Elísabetar D. Sveinsdóttur sem hefur starfað við hjálpastörf í Úganda að þessi viðburður kom til.
Að sögn Elísabetar þá voru boltarnir gefnir á munaðarleysingjahæli þar sem þeir voru nýttir til hins ýtrasta. Búningarnir fóru í barnaskóla þar sem ótrúlega glaðir krakkar mættu til leiks í fyrsta skiptið í sínum eigin búningum. Það er alveg klárt að Skallagrímur á sér orðið einhverja stuðningsmenn í Úganda þessa daganna. Eins og sjá má á myndum af börnunum í sínum fyrsta leik, að gleði barnanna í nýju búningunum leynir sér ekki. Knattspyrnudeild Skallagríms vill þakka Elísabetu fyrir að hafa gefið deildinni tækifæri til þess að láta gott af sér leiða og að geta glatt börn í öðrum heimshlutum.