17. febrúar 2010

Sjötti flokkur kvenna á hraðamóti

6. flokkur kvenna tók þátt í hraðamóti sem haldið var í Grindavík 13 feb.  Spilaðir voru fimm 10 mín. Leikir. Stelpunur spiluðu í flokki A liða á mótinu og stóðu sig virkilega vel .

Fyrsti leikurinn var á móti Heimastúlkum úr Grindavík og var það jafn og flottur leikur. Sýndu stelpurnar að þær eiga vel heima í A liðunum, en því miður náðu þær ekki að skora og Grindavík laumaði inn einu marki, en góður leikur.

Næst var spilað á móti Breiðablik sem er líklega með fremstu kvennaknattspyrnu á landinu, töpuðu þær leiknum stórt.:(  Þriðji leikurinn var á móti Aftureldingu og stelpunar ætluðu sko að vinna. En alveg eins og á móti Grindavík þá náðu þær ekki að skora og Afturelding skoraði eitt mark og annað  1-0 tapið staðreynd.

Þá var komið að leikjum um sæti. Stelpunar byrjuðu á því að spila við Keflavík og unnu sanngjarnan 1-0 sigur.  Inga Rósa skoraði markið, það var gaman að sjá til þeirra spila í þessum leik. Spiluðu þær svo um 5-6 sætið og lentu þar á móti Aftureldingu. Þær voru ákveðnar að tapa ekki aftur fyrir þeim. Byrjuðu þær af miklum krafti og komust yfir með marki frá Svövu. Stelpurnar börðust allan tímann vel, en gleymdu sér eitt augnablik, Afturelding náði að jafna og það urðu lokatölur leiksins. En samkvæmt reglum mótsins um jafntefli þá sigraði það lið sem skoraði á undan, þannig að lokaniðurstaðan var 5. Sæti sem er virkilega gott þar sem þær voru að spila sem A lið í fyrsta skipti

 

Björn Sólmar
Senda á Facebook
Næstu leikir
12. september 2010
2. flokkur karla C
Snæfellsnes/Skallag.-Breiðablik 2
Skallagrímsvöllur, kl. 14:00
Úrslit leikja
4. september 2010
2. flokkur karla C
Fjarðab/Leiknir/Huginn-Snæfellsnes/Skallag.
8 - 1
30. ágúst 2010
3. flokkur karla C1
Snæfellsnes/Skallag.-Þróttur R.
2 - 10
29. ágúst 2010
2. flokkur karla C
Tindastóll/HKL-Snæfellsnes/Skallag.
5 - 2
26. ágúst 2010
4. flokkur karla A-lið C
Skallagrímur-Ægir
0 - 6
24. ágúst 2010
3. flokkur karla C1
Breiðablik 2-Snæfellsnes/Skallag.
4 - 1
24. ágúst 2010
4. flokkur kvenna A-lið B1
Skallagrímur-KR
1 - 0
23. ágúst 2010
4. flokkur kvenna A-lið B1
ÍR-Skallagrímur
1 - 1
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes