24. janúar 2010

Góð ferð á Goðamót.

 

Stúlkurnar í fjórða flokk kvenna hafa nú lokið keppni á Goðamóti Þórs sem fram fór um helgina á Akureyri.  Eins og áður sagði hér á síðunni fóru 2 lið til keppni, annars vegar í keppni B liða og hinsvegar D liða. Stúlkurnar áttu leiki á föstudag og byrjaði B liðið mótið af krafti og lagði annarsvegar KA 1 - 0 og hinsvegar HK 2 - 0.

D liðið átti leik gegn Breiðablik og tapaði 2 – 5. Það voru því þreyttar en sáttar stúlkur sem lögðust til hvílu í Glerárskóla að kvöldi föstudags eftir velheppnaða ferð í keilu á Akureyri.

Laugardagurinn var heldur erfiðari fyrir Skallagrím, D liðið tapaði gegn Fjölni 1- 3 og Völsung 0 - 3. Lék svo í undanúrslitum liða 5 – 7,  gegn Tindastól og tapaði þeim leik einnig.

B liðið byrjaði daginn á því að tapa gegn Fjölni 1- 2 en gerði svo síðar um daginn jafntefli 3 - 3 gegn KS/Leiftri og það þýddi að Skallagrímur lenti í öðru sæti í sínum riðli einu stigi á eftir Fjölni.

 

B liðið var þá komið í undanúrslit liða 1 – 4  og átti leik gegn efsta liði hins riðils B liða sem var Breiðablik og skemmst er frá því að segja að Breiðablik vann þann leik 0 -  3. Heldur skrykkjóttur dagur en skemmtilegur.

Sunnudagurinn var okkar stúlkum hliðhollari og kom í ljós eftir undanspil að D liðið átti að etja kappi  við Samherja og er skemmst frá því að segja að okkar stúlkur rúlluðu upp þeim leik og lentu í 7. sæti.

 

B liðið fékk Fjölni sem tapaði undanúrslitaleik gegn Þór og nú voru okkar stúlkur á tánum og ætluðu ekki að tapa gegn Fjölni aftur og sigruðu örugglega 4 - 1 og enduðu því keppni í 3ja sæti B liða á Goðamóti sem er mjög ásættanlegur árangur.

 

 

Senda á Facebook
Næstu leikir
11. febrúar 2012
HF - 3. fl. karla B-lið B deild
Selfoss/Ægir-Skallagrímur
Selfossvöllur, kl. 15:30
Úrslit leikja
29. janúar 2012
HF - 3. fl. karla B-lið B deild
Breiðablik 2-Skallagrímur
4 - 0
29. janúar 2012
Innimót - 5. fl. kvenna C
Skallagrímur-Haukar
1 - 6
29. janúar 2012
Innimót - 5. fl. kvenna C
Fylkir-Skallagrímur
4 - 0
29. janúar 2012
Innimót - 5. fl. kvenna C
ÍBV-Skallagrímur
0 - 1
29. janúar 2012
Innimót - 5. fl. kvenna C
Skallagrímur-Víðir
0 - 2
29. janúar 2012
Innimót - 5. fl. karla D
Stjarnan-Skallagrímur
0 - 0
29. janúar 2012
Innimót - 5. fl. karla D
Skallagrímur-Víðir
3 - 0
29. janúar 2012
Innimót - 5. fl. karla D
Skallagrímur-Stjarnan
1 - 6
29. janúar 2012
Innimót - 5. fl. karla D
Víðir-Skallagrímur
1 - 4
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes