5. nóvember 2009
Skipulagsdagur Knattspyrnudeildar Skallagríms
Knattspyrnudeild Skallagríms boðar til vinnu- og skipulagsdags á sunnudaginn kemur, 8. nóvember með foreldrum og áhugafólki um knattspyrnu í Skallagrími. Á fundinum er ætlunin að skipuleggja starfsemi deildarinnar og hefja vinnu við mótun stefnu hennar til framtíðar. Við tökum daginn snemma og byrjum kl 12.00. Fundurinn verður í Menntaskóla Borgarfjarðar og stendur til ca. 17.00.
Ýmis verkefni verða unnin yfir daginn sem snúa m.a. að skipulagi deildarinnar, gerð foreldrahandbókar, skoðun á þátttöku í fyrirmyndarfélagi ÍSÍ og ótal margt fleira. Tilgangurinn með þessari vinnu er að gera starfsemina markvissari og enn betri.
Þetta er félagið okkar og hér getum við haft áhrif á það hvernig það er skipulagt og uppbyggt. Hér er því um frábært tækifæri að ræða til að koma hugmyndum að. Við hvetjum foreldra og allt áhugafólk um knattspyrnu að mæta og taka þátt í starfinu.
Mætum öll – þetta er félagið okkar