27. október 2009
Sjötti flokkur karla á hraðmóti
6. flokkur karla fór á fyrsta mót vetrarins í Keflavík um síðustu helgi. Þetta var hraðmót þar sem spilaðir voru 5 leikir á 2 tímum. Skallagrímur mætti með tvö lið og spiluðu þau 10 leiki samtals og allir leikirnir voru á móti liðum af höfuðborgasvæðinu, strákanir unnu fjóra leiki gerðu fjögur jafntefli og töpuðu bara 2 leikjum. Það var virkilega gaman að fylgjast með þeim á þessu móti, og núna er bara að halda áfram að æfa vel og hafa gaman að því að vera í fótbolta.
Björn Sólmar