Meistaraflokkur karla sumarið 2008

 

Meistaraflokkur sumarið 2009

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Meistaraflokkur Skallagríms hefur undanfarin ár verið á hægri en stöðugri uppleið. Í fyrra náðist besti árangur félagsins í mörg herrans ár en þá var liðið hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í 2. deild. Liðið tapaði undanúrslitaleik á heimavelli en með sigri hefði liðið komist upp.

 

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og fjöldi leikmanna hefur haldið á aðrar brautir eða hætt knattspyrnuiðkun. Alls er um 8 leikmenn úr byrjunarliði frá því í fyrra að ræða sem ekki verða með í sumar. Því er mikið uppbyggingarstarf framundan hjá meistaraflokki, rétt eins og öðrum flokkum félagsins.

 

Þjálfari liðsins þetta árið er Valdimar K. Sigurðsson. Valdimar er einn reyndasti knattspyrnumaður landsins og þegar þetta er skrifað vantar hann aðeins eitt mark í að skora tvöhundruðasta markið sitt í deildarkeppni á Íslandi. Það er að sjálfsögðu Íslandsmet.

 

Hópurinn hefur eins og áður sagði breyst mjög mikið. Ljóst er að krefjandi verkefni bíður Valdimars en kjarni hópsins er mjög lítill að þessu sinni þrátt fyrir að hópurinn sé stór og líklegt að töluverðar breytingar þurfi að gera á milli leikja. Liðið byrjar þó tímabilið ágætlega með sigri í deild og bikar eftir ansi erfiðan Lengjubikar þar sem á stundum var erfitt að ná saman í lið.

 

C-riðill 3. deildar Íslandsmótsins er langt frá því að vera auðveldur. Skallagrím er spáð 4. sæti riðilsins en ljóst er að möguleikar á því að komast í úrslitakeppni eru fyrir hendi. Líklegt er að efstu fjögur lið riðilsins muni reyta stigin hvert af öðru og því getur árangur á heimavelli skipt sköpum í riðlinum. Þá er líka ljóst að stuðningur áhorfenda skiptir miklu máli.

 

Það er alveg ljóst að til að unglingarnir okkar sjái metnað sinn í að halda áfram þá þarf að sinna meistaraflokksstarfinu með metnaði. Í sjálfu sér ætti að vera eðlilegt að bær af stærðargráðu Borgarbyggðar ætti að vera með ágætis 2. deildarlið sem gæti verið uppbyggt af heimamönnum. Staðreyndin er hins vegar sú að afar fáir Borgnesingar stunda knattspyrnu af krafti með liði Skallagríms og því hefur þjálfari liðsins brugðið á það ráð að fá öfluga Skagamenn til liðs við hópinn.

 

Eitt er þó nauðsynlegt fyrir framgang meistaraflokks og til að minnka brottfall iðkenda á leiðinni þangað en það er stofnun 2. flokks. Stökkið úr 3. flokki og upp í meistaraflokk reynist mörgum ágætum knattspyrnumönnum of stórt og því verður brottfallið ansi mikið á þessum árum.

 

Framtíðin er björt. Þegar komist verður úr öldudal efnahagsþrenginga verður væntanlega stór hópur ungra og efnilegra knattspyrnumanna kominn á meistaraflokksaldur. Þeirra bíður svo verkefnið um að halda á lofti merki Skallagríms.

 

 

 

Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes