Jónsmessumót

23-24. JÚNÍ 2012

Í Borgarnesi fyrir stráka og stelpur í 3.flokk
Jónsmessumótið er hraðmót bæði fyrir stráka og stelpur í 3, flokki og verður leikið í 7 manna liðum.

Mótið hefst á laugardagskvöldi og er áætlað að fyrstu leikir hefjist kl 20:00. Leikið verður alla nóttina og fram undir morgun og að móti loknu geta allir skellt sér í sund.

Boðið verður upp á ávexti og drykki um nóttina og svo endar mótið með grillveislu þar sem boðið verður uppá hamborgarar. Einnig verður hægt að kaupa samlokur, ávexti og fleira á svæðinu.

Hægt verður að fá gistingu fyrir þá sem vilja eftir keppni í grunnskólanum sem staðsettur er beint fyrir ofan keppnisvellina.

Þátttökugjald er kr. 3000.- á hvern leikmann.
Innifalið í verð er hressing um nóttina, hamborgaraveisla, sund og gisting.

Upplýsinga eru veittar á tölvupósti knattspyrna@skallagrimur.is í síma 869-3941 og á www.skallagrimur.is

 

Einnig er hægt að skrá með því að smella HÉR

 

Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes