Góð ráð til foreldra barna í knattspyrnu
-
Komdu á æfingu eða keppni þegar þú getur. Barninu finnst það gaman!
-
Ekki hvetja bara þitt barn í leik eða keppni, heldur allt liðið.
-
Sýndu jákvæðni og stuðning (líka í mótlæti) - ekki gagnrýna.
-
Berðu virðingu fyrir störfum þjálfarans - ekki reyna að hafa áhrif á hann meðan á leik eða keppni stendur.
-
Dómarinn er til að leiðbeina og kenna jafnt sem að dæma. Ekki gagnrýna ákvarðanir hans.
-
Hvettu barn þitt til að taka þátt í æfingum og keppni. - Ekki beita þau þrýstingi.
-
Spurðu barnið að keppni lokinni hvort var gaman og hvernig það stóð sig. - Ekki endilega hvernig fór, því úrslitin eru ekki aðalatriði.
-
Berðu virðingu fyrir starfi félagsins.
-
Verið virk á foreldrafundum þar sem umræður fara fram um þjálfun og markmið, þar er ykkar vettvangur sem og í foreldraráði.
-
Mundu að það er barnið þitt sem er að taka þátt. - EKKI ÞÚ! Sumum foreldrum hættir til að gleyma því.
-
Viltu hjálpa til og vera virkari í stuðningi þínum við knattspyrnuiðkun barns þíns? - Bjóddu fram aðstoð þína, vertu liðsstjóri, bjóddu þig fram í foreldraráð, spurðu þjálfarann hvernig þú getur hjálpað til.