26. mars 2009

Árgangamót Skallagríms 2009

Hinn gríðarsterki 1969 árgangur mun væntanlega mæta til leiks.

Fyrsta árgangamót Knattspyrnudeildar Skallagríms verður haldið laugardaginn 18. apríl 2009 í íþróttahúsinu í Borgarnesi.


Mótið er fyrir árganga 1989 og eldri.  Allir þeir sem hafa æft, spilað eða haldið með Skallagrími eru gjaldgengir. Í elstu aldurshópum (Lávarðadeild) er heimilt að senda lið óháð árgöngum. Er það tilvalið tækifæri fyrir stuðningsmenn, fyrirtæki, foreldra iðkenda og aðra velunnara Skallagríms til þess að senda lið til leiks. Mótið er ætlað báðum kynjum og heimilt er að senda blönduð lið til leiks.

 

Hver árgangur skipar eitt lið, ef ekki næst í lið þá er árgöngum skeytt saman. Hvert lið skal a.m.k. vera skipað 4 leikmönnum. Þátttökugjald er 1.500 kr. á leikmann og rennur ágóði mótsins til reksturs knattspyrnudeildarinnar.

Árgangar 1980-89 keppa innbyrðis í Unglingadeild
Árgangar 1970-79 keppa innbyrðis í Meistaradeild
Árgangar 1969-01 keppa innbyrðis í Lávarðadeild
 
Nánari útfærsla verður birt síðar en keppninni lýkur með úrslitakeppni þar sem besti árgangurinn stendur uppi sem sigurvegari.
 
Hópar og einstaklingar geta haft samband á netfangið einarth75@hotmail.com til að tilkynna þátttöku. Einstaklingum verður veitt aðstoð við að komast í lið enda stefnan að allir sem hafa áhuga eiga að geta verið með!

.

Lokafrestur að tilkynna þátttöku er fimmtudagurinn 16 apríl. 
 

1959     Kristmar Ólafsson -        kristmar@simnet.is

1964        Björn Axelsson                          sjugra@simnet.is 

1968       Valdimar K. Sigurðsson            valdikriss@hotmail.com
1969       Hilmar Þór Hákonarson            hilak@simnet.is

1971       Stefán Broddi Guðjónsson        sbg@straumur.net

1972       Guðmundur Smári Valsson      gsmari@talnet.is 
1975       Einar Þorvaldur Eyjólfsson      einarth75@hotmail.com

1976       Halldór Steinar Sigurðsson      halldorst@internet.is
1980       Magnús Geir Eyjólfsson          magnusey@yahoo.com
1981       Björn Sólmar Valgeirsson        bodvarsgata@simnet.is

1982       Guðlaugur Andri Axelsson      gaa5@hi.is

1984       Guðmundur Björn Þorbjörnssongth17@hi.is
1985       Ingólfur Hólmar Valgeirsson    glingglo@arsenal.is 

1986       Arnar Þorsteinsson                    addi_porn@hotmail.com
1987       Guðmundur Lúther Hallgrímsson   gummi_luther@hotmail.com
1988       Arnar Helgi Jónsson                 arnarh_88@hotmail.com
1989       Ingi Björn Róbersson                iddibiddi@hotmail.com 

 

Senda á Facebook
Næstu leikir
12. september 2010
2. flokkur karla C
Snæfellsnes/Skallag.-Breiðablik 2
Skallagrímsvöllur, kl. 14:00
Úrslit leikja
5. september 2010
2. flokkur karla C
Höttur/Einherji-Snæfellsnes/Skallag.
3 - 0
4. september 2010
2. flokkur karla C
Fjarðab/Leiknir/Huginn-Snæfellsnes/Skallag.
8 - 1
30. ágúst 2010
3. flokkur karla C1
Snæfellsnes/Skallag.-Þróttur R.
2 - 10
29. ágúst 2010
2. flokkur karla C
Tindastóll/HKL-Snæfellsnes/Skallag.
5 - 2
26. ágúst 2010
4. flokkur karla A-lið C
Skallagrímur-Ægir
0 - 6
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes