Frá stuðningsmönnum - Við þurfum á þér að halda !

Stuðningsmenn Körfuknattleiksdeildar Skallagríms hafa tekið höndum saman með stjórninni og vilja rétta deildinni hjálparhönd í erfiðu árferði.  Við viljum stuðla að því að körfuboltinn blómstri áfram í Skallagrími.  Við erum með efnileg lið og margt ungt fólki sem leggur mikið á sig fyrir íþróttina. 

Því leitum við nú til velunnara deildarinnar eftir stuðningi.  Margt smátt gerir eitt stórt.  Öll framlög eru mikilvæg.   Þeir sem hafa tök á að leggja okkur lið skrá sig fyrir ákveðnu framlagi á mánuði meðan á leiktímabilinu stendur út mars 2010.  Skráning er á karfa@skallagrimur.is    Látið koma fram nafn, kennitölu og styrkupphæð á mánuði.  Einnig munu skráningarblöð liggja frammi á heimaleikjum  og í afgreiðslu íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi.

Einnig má finna skráningarblaðið hér

 

 

Baráttukveðjur ! ÁFRAM SKALLAGRÍMUR !

Stuðningsmenn Körfuknattleiksdeildar Skallagríms

 

Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes