Nytjamarkaðurinn opinn  alla laugardaga kl. 12-16

 

Það er mikið af nýju "gömlu" dóti á markaðnum.  Verðum með opið á laugardögum  milli kl. 12.00- 16.00

Nú er nytjamarkaðurinn á Facebook !  Þar eru myndir og ýmsar upplýsingar.

 

HH

 

 

 

 

 

Nytjamarkaður Skallagríms

 

Það verða nytjamarkaðir  í Brákarey (matsal sláturhússins)  á laugardögum í september og október milli  12.00 – 16.00
 

 

Sumarið 2009 hóf Körfuknattleiksdeildin að starfrækja Nytjamarkað í Borgarnesi. Deildin auglýsti eftir  hlutum gefins á þennan nytjamarkað og voru undirtektir frábærar. Fyrsti markaðurinn var svo í tengslum við Brákarhátíð í Borgarnesi og startið var frábært.  Eftir það var markaðurinn opinn flesta laugardaga í sumar í húsnæði gamla sláturhússins í Brákarey. Á markaðnum seljum við allt mögulegt; leikföng, bækur, fatnað, skó, búsáhöld, skrautmuni, húsgögn, vínilplötur, dekk, reiðhjól ofl.ofl. Markaðurinn mun verða opinn eitthvað í haust og vetur og mun það verða auglýst kyrfilega þegar að því kemur.

 

Hér erum við staðsett
Rósa við störf á Nytjamarkaði

Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes