28. febrúar 2010 13:53

Bikarmeistaratitill í drengjaflokki

Sameiginlegt lið Skallagríms/Snæfells varð í gær bikarmeistari i drengjaflokki.  Strákarnir léku til úrslit á móti liði Hamars/Þórs.  Úrslit leiksins voru 80-78 fyrir okkar menn.  Það var Egill Egilsson sem var langstigahæstur, skoraði 41 stig og tók 9 fráköst.  Kristján Andresson skoraði 17 stig og tók 9 fráköst og Trausti Eiríksson skoraði 7 stig og tók hvorki meira né minna en 16 fráköst.  Nánar um tölfræði leiksins inná   http://www.kki.is/widgets_game.asp?league_id=undefined&season_id=366&game_id=45841

Glæsilegur árangur hjá strákunum og við hvetjum áhugafólk um körfubolta til að mæta á leik hjá þeim á miðvikudaginn hér í Borgarnesi en þá spila þeir á móti Grindavík og hefst leikurinn kl. 20.00

 

HH
Senda á Facebook
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes