7. febrúar 2010 08:50

9.fl. karlar - Umferð í Borgarnesi helgina, 6.-7. febrúar.

 9. flokkur karla hjá Skallagrím samanstendur af strákum í 7, 8 og 9 bekk.  Á laugardeginum sigruðu strákarnir lið Ármanns og Vals.  Á sunnudeginum byrjuðu þeir daginn með því að sigra lið Stjörunnar í hörkuleik.  Síðasti leikur Skallagrímsstráka var við lið Grindavíkur.  Leikurinn var hörkuspennandi en Grindavíkurpiltar voru þó alltaf skrefinu á undan.  Skallagrímur átti möguleika í lokin á að jafna og hefði tekist það með smá heppni.   Það voru Ármenningar sem fóru upp að þessu sinni

Allir hafa Skallagríms strákarnir sýnt miklar framfarir síðan í haust og leystu oft á tíðum bæði sókn og vörn vel af hendi.  Þetta er virkilega efnilegur hópur og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.  Hafþór þjálfari var mjög ánægður með sína menn eftir helgina þó ekki hefði tekist að sigra síðasta leikinn.  Allir stóðu strákarnir sig vel en þó verður sérstaklega að geta þeirra Antons, Áka, Kára, Óla, Snorra og Þorkels.  Þá áttu Summi og Kristó mjög góða spretti.  Aðrir leikmenn og  yngstu mennirnir í hópnum komu sjaldnar inná að þessu sinni en þeirra framlag lofar góðu. .  Næsta umferð hjá 9. flokk verður helgina 20.-21. mars.

HH/HIG
Senda á Facebook
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes