Kæru foreldrar/forráðamenn.
Nú kostar ekkert að æfa körfubolta!!
Körfuknattleiksdeild Skallagríms vinnur nú að útbreiðslu körfuknattleiks íþróttarinnar meðal stúlkna í Borgarbyggð á grunnskólaaldri, en deildin fékk nýlega styrk frá menntamálaráðuneytinu til að kynna körfuknattleik fyrir stúlkum.
Körfuknattleiksdeildin mun því bjóða stúlkum á grunnskólaaldri uppá æfingarendurgjaldslaust í febrúar – mars 2010 og október-nóvember 2010.
Lögð verður áhersla á að æfingarnar henti ÖLLUM jafnt byrjendum sem lengra komnum, en lykilatriði er að við ætlum að hafa gaman af þessu og kynnast körfuknattleik bæði sem íþrótt og skemmtun. Farið verður í ýmsa leiki tengda körfuknattleik og kenndar verðar reglur og grunnatriði fyrir þær sem eru að stíga sín fyrstu skref í körfubolta.
Leiðbeinendur/þjálfarar verða m.a. erlendir leikmenn meistaraflokks karla en þeir hafa mikla reynslu af þjálfun yngri flokka og að sjálfsögðu verður íslenskumælandi leiðbeinandi á öllum æfingum líka. Þá má búast við heimsóknum á æfingar frá landsliðsfólki í íþróttinni og leikmenn meistaraflokks kvenna hjá Skallagrím líta við á æfingar.
Ef áhugi er á verður farin hópferð á leik hjá úrvalsdeildarliði kvenna þegar úrslit í deildinni nálgast. Einnig bendum við á að það er endurgjaldslaust á alla heimaleiki hjá meistaraflokkum kvenna og karla hjá Skallagrím fyrir þennan aldurshóp það sem eftir er af núverandi tímabili.
Í vor (mars-apríl) er svo ætlunin að ljúka fyrrihluta verkefnisins með æfingabúðum þar sem von er á skemmtilegum gestaþjálfurum, allir fá merktan bol og slegið verður upp pizzuveislu í lokin.
Æfingar hefjast skv. æfingatöflu hússins þann 4. febrúar. Ekki er þörf á að skrá sig sérstaklega á æfingar, nóg er að mæta í íþróttahúsið og vera komin í íþróttafötin þegar æfingin byrjar.
Æfingatímar og upplýsingar um þjálfara eru á hér neðst á síðunni.
Með von um að sem flestir geti nýtt sér þetta boð og kynnst þessari skemmtilegu íþrótt !
Fh. Körfuknattleiksdeildar Skallagríms
Pálmi Blængsson formaður. Gsm: 8697095. Netfang: karfa@skallagrimur.is, palmi@suzuki.is
Rósa Marinósdóttir formaður yngri flokka ráðs. Gsm: 894 8174. Netfang:sigtun@vesturland.is
Æfingatímar og þjálfarar
1-3 bekkur stúlkur
Æfingatímar:
Mánudagur kl.15:30-16:20 og Fimmtudagur kl.15:30-16:20.
Þjálfarar:
Hugrún Eva Valdimarsdóttir leikmaður mfl. kvenna. Gsm: 844 7307
Sigurður Þórarinsson leikmaður mfl. karla. Gsm: 844 0704. Siggi er norðurlandameistari með U18ára landsliði íslands og hefur Þjálfað yngriflokka Skallagríms sl. tvö ár.
Silver Laku leikmaður mfl. karla. Silver er atvinnumaður í körfuknattleik, hann er fæddur í Afríku en hefur búið í Kanada lengst af. Hann hefur m.a. þjálfað börn og unglinga hjá Toronto Raptors í Kanada.
4-6 bekkur stúlkur:
Æfingatímar:
Þriðjudagar kl.17:10-18:00 og föstudagar kl.14:30-15:30.
Þjálfarar:
Gunnhildur Lind Hansdóttir leikmaður mfl. kvenna. Gsm: 661 5479. Gunnhildur hefur þjálfað yngriflokka Skallagríms sl. tvö ár.
Íris Gunnarsdóttir leikmaður mfl. kvenna. Gsm: 663 9095. Íris hefur þjálfað yngriflokka Skallagríms sl. tvö ár
Konrad Tota leikmaður mfl. karla. Konrad er atvinnumaður í körfuknattleik, hann er fæddur í Póllandi en hefur búið í Kanada lengst af. Hann er menntaður kennari og hefur mikla reynslu af þjálfun yngriflokka.
Silver Laku leikmaður mfl. karla. Silver er atvinnumaður í körfuknattleik, hann er fæddur í Afríku en hefur búið í Kanada lengst af. Hann hefur m.a. þjálfað börn og unglinga hjá Toronto Raptors í Kanada.
7-10 bekk stúlkur:
Æfingatímar:
Mánudagar kl.16:20-17:35, Fimmtudagar kl.16:20-17:10 og Sunnudagar kl.11:00-12:00
Þjálfarar:
Hugrún Eva Valdimarsdóttir leikmaður mfl. kvenna. Gsm: 844 7307
Konrad Tota leikmaður mfl. karla. Konrad er atvinnumaður í körfuknattleik, hann er fæddur í Póllandi en hefur búið í Kanada lengst af. Hann er menntaður kennari og hefur mikla reynslu af þjálfun yngriflokka.
Silver Laku leikmaður mfl. karla. Silver er atvinnumaður í körfuknattleik, hann er fæddur í Afríku en hefur búið í Kanada lengst af. Hann hefur m.a. þjálfað börn og unglinga hjá Toronto Raptors í Kanada.
Munið að allar stúlkur á grunnskólaaldri eru velkomnar !