24. janúar 2010 20:06
Mfl. kvenna í körfunni - Sigur á móti Laugdælum í dag - 64-41.
Baráttuljónið Helena Ingimundardóttir skoraði 13 stig,reif niður 15 fráköst og stal 7 boltum, stórfínn leikur hjá henni. Rannveig Reynisdóttir var með 13 stig, 5 fráköst og 4 stolna bolta, hennar besti leikur í vetur. Hugrún Valdimarsdóttir var með 9 stig, 14 fráköst og 5 varin skot. Gunnhildur Lind Hansdóttir var með 9 stig 7 stolna bolta og 10 stoðsendingar. Guðrún Ingadóttir smellti niður 9 stigum. Þórkatla Þórarinsdóttir skorði 2 stig og tók 4 fráköst en hún var í byrjunarliðinu í fyrsta skipti í vetur og spilaði fanta góða vörn. Birna Aradóttir setti 3 stig og tók 4 fráköst einnig hennar fyrsti byrjunarliðsleikur á tímabilinu. Þórdís og Katarina skiluðu sínu vel á þeim tíma sem þær fengu. Síðast en ekki síst má nefna stórleik Þorbjargar Sigurðardóttur (Bobbu). Þegar að Bobba kom inn á small vörnin saman hjá Skallagrím og Laugdælir skoruðu ekki körfu í þó nokkurn tíma. Bobba batt saman vörnina og reif í sig 6 fráköst stal 4 boltum og skoraði 4 stig.
Lokatölur 64-41. Eins og sjá má þá var stigaskorið nokkuð jafnt í þessum leik og er óhætt að segja að þessi sæti sigur hafi verið sigur liðsheildarinnar.
Næsti leikur Skallagrímsstúlkna er föstudaginn 29. janúar í Garðabæ á móti Stjörnunni.
HH/FJ