13. janúar 2010 16:00

Tilkynning til foreldra yngstu iðkenda í körfubolta

Fyrirhugað er að  yngstu iðkendurnir í körfubolta fari á Póstmót Breiðabliks sem haldið verður í Kópavogi  helgina 23 og 24 janúar.

Skallagrímur er búinn að skrá  lið eitt lið 6- 7 ára stráka, eitt lið 8 – 9 ára stráka, eitt lið 10 -11 ára stráka og eitt lið stelpna 11 ára og yngri.

Keppt verður bara annan daginn í hverjum flokki og stendur mótið yfir í ca 2 – 3 tíma eftir fjölda liða. Foreldrar sjá um að koma barninu á keppnisstað og sjá um það þar þjálfarar verða með.  Þátttökugjald  er 1.500 kr á keppenda sem foreldrar þurfa að greiða. Auglýsing um mótið er á www.breidablik.is  undir körfubolta. Foreldrar þurfa að skrá barnið sitt á meðfylgjandi blað og koma því til viðkomandi þjálfara fyrir þriðjudaginn 19. Jan.

sjá blaðið hér

f.h. Skallagríms Rósa Marinósdóttir.
Senda á Facebook
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes