29. nóvember 2009 19:45
Mfl. Kvenna - 1.deild - Tap á móti Fjölni
Skallagrímsstúlkur léku á móti Fjölnisstúlkum í 1. deild mfl. kvenna í gær í Dalhúsum í Grafarvogi. Skemmst er frá því að segja að Skallagrímsliðið var langt frá sínu besta og skoraði m.a. aðeins 14 stig í fyrri hálfleik. Heldur sóttu þær í sig veðrið í síðari hálfleik en úrslitin urðu 69-47 fyrir Fjölni. Stigahæstar voru Gunnhildur með 15 stig, Helena með 12, Hugrún með 6 og Rannveig 5. Skallagrímur tapaði naumlega móti Fjölni í heimaleik hér fyrr í haust og ljóst að á góðum degi geta þær veitt þessu efsta liði 1. deildar harða keppni. Sunnudaginn 6. desember fá Skallagrímsstúlkur einmitt Fjölni í heimsókn í 16 liða úrslitum Subwaybikarsins. Skallagrímsstúlkur verða að sýna sínar bestu hliðar á sunnudaginn ætli þær sér sigur. Leikurinn er í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi n.k. sunnudag og hefst kl. 17.00
HH