17. maí 2012

Körfuknattleiksdeild | Norðurlandamót U16 hefst í dag

 Norðurlandamót U16 kvenna hefst í dag í Solna í Svíþjóð. Skallagrímur á ekki keppanda á mótinu en Finnur Jónsson, yfirþjálfari yngri flokka Skallagríms er aðstoðarþjálfari liðsins. Þar hittir hann fyrir fyrrverandi þjálfara sinn hjá Skallagrím, engan annan en Tómas Holton.

 

Ljóst er að það er á brattann að sækja hjá liðinu því það hefur ekki unnið leik á NM í þessum aldursflokk síðan 2009. Óskum við Finni og félögum alls hins besta og ljóst er að hann kemur reynslunni ríkari til baka.

17. maí 2012

Körfuknattleiksdeild | Skallagrímur semur við leikmenn

Í gær var skrifað undir samninga við fimm leikmenn til viðbótar við þá Andrés Kristjánsson, Davíð Guðmundsson og Lloyd Harrison sem áður var búið að semja við. Leikmennirnir eru Egill Egilsson, Davíð Ásgeirsson, Birgir Þór Sverrisson, Sigurður Þórarinsson og Orri Jónsson. Orri spilaði með liði FSU í vetur og var einn af lykilleikmönnum liðsins með 15,7 stig að meðaltali í leik og ekki skemmir fyrir að Orri er borgfirðingur.
 

14. maí 2012

Körfuknattleiksdeild | Lokahóf yngri flokka

 Lokahóf yngri flokka hjá körfuknattleiksdeild Skallagríms var haldið í brakandi blíðu í Skallagrímsgarði síðastliðinn fimmtudag. Allir iðkendur frá 6-19 ára ásamt fjölda foreldra mættu á svæðið og gæddu sér á grilluðum pylsum og ávaxtasafa. Grillmeistararnir Finnur Jónsson og Ingi Tryggvason voru með grilltangirnar á lofti og grilluðu yfir 200 pylsur ofaní mannskapinn.

9. maí 2012

Knattspyrnudeild | Námsferð

Sigurkarl Gústavsson yfirþjálfari Skallagríms var á dögunum valinn í tíu manna hóp þjálfara og stjórnenda innan  KSÍ, sem sótti námskeið til Kaupmannahafnar. Það var danska knattspyrnusambandið (DBU) sem stóð fyrir námskeiðinu  þar sem  fulltrúar knattspyrnusambanda Íslands, Danmerkur, Úkraínu og Armeníu voru saman komnir að ræða málefni knattspyrnunnar.

Á námskeiðinu  kynnti hvert samband grasrótarstarf í sínu landi og  fjallað var um hvernig auka mætti gæði þjálfunar og auka þátttöku í þessari vinsælu íþrótt sem knattspyrnan er.  Auk þess að fræðast um starfsemi annarra landa fór fram talsverð umræða innan íslenska hópsins um þau vandamál og lausnir sem íslensk félög glíma við.

 

Eitt af markmiðum UEFA er að efla grasrótarstarf,  því eins og Platini hefur sagt ,þá grundvallast  knattspyrna á grasrótinni, og knattspyrna gegnir mikilvægu hlutverki í hverju samfélagi.

 

Sigurkarl kemur heim reynslunni ríkari og á vonandi eftir að færa okkur nýjar og ferskar hugmyndir sem efla enn frekar grasrótarstarf í Knattspyrnudeild Skallagríms.  

Hvetjið börnin til þátttöku, ekki þvinga þau, ánægja þeirra og áhugi er það sem máli skiptir.

 

 

Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes