9. maí 2012
Sigurkarl Gústavsson yfirþjálfari Skallagríms var á dögunum valinn í tíu manna hóp þjálfara og stjórnenda innan KSÍ, sem sótti námskeið til Kaupmannahafnar. Það var danska knattspyrnusambandið (DBU) sem stóð fyrir námskeiðinu þar sem fulltrúar knattspyrnusambanda Íslands, Danmerkur, Úkraínu og Armeníu voru saman komnir að ræða málefni knattspyrnunnar.
Á námskeiðinu kynnti hvert samband grasrótarstarf í sínu landi og fjallað var um hvernig auka mætti gæði þjálfunar og auka þátttöku í þessari vinsælu íþrótt sem knattspyrnan er. Auk þess að fræðast um starfsemi annarra landa fór fram talsverð umræða innan íslenska hópsins um þau vandamál og lausnir sem íslensk félög glíma við.
Eitt af markmiðum UEFA er að efla grasrótarstarf, því eins og Platini hefur sagt ,þá grundvallast knattspyrna á grasrótinni, og knattspyrna gegnir mikilvægu hlutverki í hverju samfélagi.
Sigurkarl kemur heim reynslunni ríkari og á vonandi eftir að færa okkur nýjar og ferskar hugmyndir sem efla enn frekar grasrótarstarf í Knattspyrnudeild Skallagríms.