29. nóvember 2009 07:45
Mfl. Kvenna - 1.deild - Tap á móti Fjölni
Skallagrímsstúlkur léku á móti Fjölnisstúlkum í 1. deild mfl. kvenna í gær í Dalhúsum í Grafarvogi. Skemmst er frá því að segja að Skallagrímsliðið var langt frá sínu besta og skoraði m.a. aðeins 14 stig í fyrri hálfleik. Heldur sóttu þær í sig veðrið í síðari hálfleik en úrslitin urðu 69-47 fyrir Fjölni. Stigahæstar voru Gunnhildur með 15 stig, Helena með 12, Hugrún með 6 og Rannveig 5. Skallagrímur tapaði naumlega móti Fjölni í heimaleik hér fyrr í haust og ljóst að á góðum degi geta þær veitt þessu efsta liði 1. deildar harða keppni. Sunnudaginn 6. desember fá Skallagrímsstúlkur einmitt Fjölni í heimsókn í 16 liða úrslitum Subwaybikarsins. Skallagrímsstúlkur verða að sýna sínar bestu hliðar á sunnudaginn ætli þær sér sigur. Leikurinn er í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi n.k. sunnudag og hefst kl. 17.00
meira...
25. maí 2007 12:08
Fleiri myndir
meira...
24. maí 2007 11:58
Myndir frá lokahófi yngri flokka körfuboltans 2007
Myndirnar tók Inga Margrét

meira...
22. maí 2007 09:41
Lokahóf í körfunni á fimmtudag......en nýbakaðir Norðurlandameistarar í skólaferðalagi!
Lokahóf körfuknattleiksmanna verður á fimmtudaginn kemur kl. 18:00 í Óðali. Tilkynnt verður um val á efnilegasta leikmanninum og besta leikmanninum í hverjum flokki.
Því miður gefst ekki tækifæri til að hylla nýkrýnda Norðurlandameistara í körfubolta Þá Trausta og Sigga Þ. Þeir eru í skólaferðalagi á sama tíma.....samt sem áður....til hamingju strákar með frábæran árangur.
meira...
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes