9. mars 2010 02:53
Bingó - Bingó - Bingó - Fimmtudaginn 11. mars kl. 19.30 í Óðal
Nú spilum við Bingó í félagsmiðstöðinni Óðal á fimmtudaginn 11. mars kl. 19.30
Fjöldi glæsilegra vinninga
Aðalvinningar:
- Gisting með morgunverði fyrir tvo á Hótel Hamri
- Glæsilegur GSM sími
Verð á bingóspjöldum:
Eitt spjald 700 kr
Tvö spjöld 1.200 kr
Þrjú spjöld 1.500 kr
Allir hjartanlega velkomnir á Bingó !
Við þökkum fyrirtækjum og stofnunum sem gáfu okkur vinninga kærlega fyrir stuðninginn.
Bingónefnd Körfuknattleiksdeildar Skallagríms
meira...
5. mars 2010 10:25
Mikið framundan í körfunni næstu viku - Bingó og síðustu heimaleikir
Það er margt framundan í körfunni næstu vikuna.
- Bingóstjórar deildarinnar bjóða uppá bingó fimmtudagskvöldið 11. mars í félagsmiðstöðinni Óðal kl. 19.30. Glæsilegir vinningar í boði m.a. kvöldverður á Hótel Hamri og gsm símar
- 12. mars föstudag - Heimaleikur hjá mfl. karla kl. 19.15 á móti ÍA
- 13. mars laugardag - Heimaleikur hjá mfl. kvenna kl. 15.00 á móti Stjörnunni
- 13.-14. mars 11.flokkur drengja - Skallagrímsdrengir leika í sínum riðli á Akranesi, íþróttahúsinu Jaðarsbökkum, laugardag og sunnudag 13. og 14. mars
- 16. mars þriðjudag - Heimaleikur hjá drengjaflokk kl. 19.00 á móti Stjörnunni
meira...
28. febrúar 2010 01:53
Bikarmeistaratitill í drengjaflokki
Sameiginlegt lið Skallagríms/Snæfells varð í gær bikarmeistari i drengjaflokki. Strákarnir léku til úrslit á móti liði Hamars/Þórs. Úrslit leiksins voru 80-78 fyrir okkar menn. Það var Egill Egilsson sem var langstigahæstur, skoraði 41 stig og tók 9 fráköst. Kristján Andresson skoraði 17 stig og tók 9 fráköst og Trausti Eiríksson skoraði 7 stig og tók hvorki meira né minna en 16 fráköst. Nánar um tölfræði leiksins inná http://www.kki.is/widgets_game.asp?league_id=undefined&season_id=366&game_id=45841
Glæsilegur árangur hjá strákunum og við hvetjum áhugafólk um körfubolta til að mæta á leik hjá þeim á miðvikudaginn hér í Borgarnesi en þá spila þeir á móti Grindavík og hefst leikurinn kl. 20.00
meira...
28. febrúar 2010 01:48
Trausti Eiríksson - íþróttamaður UMSB 2009
Trausti Eiríksson, körfuboltamaður, hlaut í gær á íþróttahátíð UMSB, tiltilinn Íþróttamaður Borgarfjarðar. Trausti er afar vel að þessum titli kominn og hlaut fyrr í vetur titilinn íþróttamaður Borgarbyggðar. Jón Ingi Sigurðsson sundmaður var í öðru sæti og Sigurður Þórarinsson körfuboltamaður í þriðja sæti. Körfuknattleiksdeildin óskar Trausta innilega til hamingju með titilinn og íþróttamönnunum öllum sem tilnefndir voru til hamingju.
meira...
26. febrúar 2010 01:20
Nytjamarkaður alla laugardaga í Brákarey kl. 12-16
Alltaf eitthvað nýtt að skoða !
Heitt á könnunni.
meira...
26. febrúar 2010 01:19
Tap í Borgarnesi. Mfl. karla Skallagrímur - Höttur - 91-103
Hattarmenn komu grimmir til leiks. Þó jafnræði væri með liðunum fram á síðustu mínútur þá var leikgleðin meiri hjá leikmönnum Hattar og þeir hittu úr erfiðum skotum meðan heimamenn misstu oft boltann klaufalega og náðu ekki að klára sóknir. Nú eru aðeins tveir leikir eftir í deildinni fram að úrslitakeppni. Útileikur á móti Hrunamönnumföstudaginn 5. mars og síðasti leikur er heimaleikur á móti ÍA föstudaginn 12. mars.
meira...
23. febrúar 2010 04:20
Drengjaflokkur Skallagrímur/Snæfell - Bikarúrslitaleikur laugardag 27. febrúar
Bikarúrslitaleikur á móti Þór/Hamri næsta laugardag. Í Njarðvík kl. 16.00
meira...
23. febrúar 2010 04:15
Mfl. karla - heimaleikur á móti Hetti föstudaginn 26. febrúar kl. 18.30
Nú mæta allir á pallana og styðja strákana ! Frítt fyrir krakka 15 ára og yngri. Hyrnuskot í hálfleik.
ATHUGIÐ BREYTTAN LEIKTÍMA
Miðvikudaginn 3. mars leikur drengjaflokkur Skallagríms/Snæfells á móti Grindavík. Leikurinn er í Borgarnesi og hefst kl. 20.00
meira...
23. febrúar 2010 04:12
Mfl. kvenna - tap á Akureyri
Mfl. kvenna tókst ekki að fylgja eftir góðum sigri á Fjölni er Skallagrímsstúlkur lékur á móti Þór á Akureyri sunnudaginn 21. febrúar sl. Leikurinn tapaðist 63-39. Jafnræði var með liðunum í hálfleik en leikir þessara liða hafa verið jafnir í vetur. Á síðasta tímabili unnu Skallagrímsstúlkur alla leiki á móti Þórsurum en tókst ekki að halda uppteknum hætti þetta tímabilið. Skallagrímur er í þriðja sæti deildarinnar og eygir enn von um að spila umspil um sæti í úrvalsdeild.
meira...
20. febrúar 2010 12:58
Skallagrímssigur á Akureyri - mfl. karla
Skallar unnu góðan sigur á Akureyri föstudagskvöldið 19. febrúar. Skallagrímur leiddi leikinn allan tímann. Stigahæstir voru Silver með 28 stig, Konrad 15, Siggi Þ. 14, Hafþór 9 stig og 6 fráköst og Kristján 7 stig og 8 fráköst, Trausti 3 stig og Óðinn 2.
Næsti leikur er heimaleikur 26. febrúar en þá koma Hattarmenn í heimsókn. Hefst sá leikur 18.30
meira...
14. febrúar 2010 07:46
Meistaraflokkur kvenna - Stórsigur á toppliði Fjölnis - 96-51
Skallagrímskonur fengu lið Fjölnis í heimsókn í Borgarnes í dag. Lið Fjölnis var ósigrað á toppi deildarinnar. Leikir þessara liða hafa ávalt verið spennandi og miklir baráttuleikir.
meira...
12. febrúar 2010 10:01
Trausti Eiríksson körfuknattleiksmaður - Íþróttamaður Borgarbyggðar 2009
Trausti átti gott ár 2009, var mikilvægur leikmaður landsliðsins U18 og sterkur í vörninni hjá Skallagrím. Trausti er afar vel að þessum titli kominn og óskar stjórn körfuknattleiksdeildar honum til hamingju svo og öllu því íþróttafólki sem tilnefnt var til verðlauna.
meira...