6. október 2009 03:52
Sameiginleg þrekæfing
Miðvikudaga kl. 17:17 verður boðið upp á nýjan þrektíma sem allir 14 ára og eldri geta mætt í hvort sem þeir æfa hjá deildum Umf. Skallgríms eða ekki. Sem sagt allir mega mæta og vera með í smá sameiginlegu þreki og í góðum og hvetjandi félagsskap. ( Almenningur velkomin líka ).
Hópurinn byrjar úti á Skallagrímsvelli klukkan 17:17 þar sem samnefndur skokkhópur mun slást með í för. Þar mun Bjarni Þór Traustason íþróttafræðingur verða með létta upphitun, hlaupaæfingar ýmiskonar, þolæfingar og jafnvel æfingar í tröppunum.
Klukkan 18:00 verður farið inní íþróttasal og þar verður hefðbundin stöðvaþjálfun ásamt stöðukraftsæfingum og að sjálfsögðu teygjuæfingum í lokin undir leiðsögn Bjarna.
Þessar æfingar munum ekki kosta neitt fyrir þá sem mæta nema ef fólk ætlar í pottinn á eftir þá þarf að borga ofan í laug eða sýna mánaðar eða árskort.
Kær kveðja allir velkomnir!
meira...
31. ágúst 2009 03:28
Tímatafla í Íþróttahúsi
Hér má sjá tímatöflu í Íþróttahúsi sem að tekur gildi nú í september og mun verða endurskoðuð fyrir 16. október.
sjá pdf skjal
meira...
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes