Heilræði og ráðleggingar til foreldra:
Hvetjið börnin til þátttöku
- ekki þvinga þau, ánægja þeirra og áhugi er það sem máli skiptir.
Mætið bæði á leiki og á æfingar
- það hvetur og uppörvar börnin að finna fyrir áhuga ykkar.
Berið virðingu fyrir störfum þjálfarans
- ekki reyna að hafa áhrif á hann meðan á leik eða æfingu stendur og látið hann um þjálfunina og leikstjórnunina. Ekki hrópa og kalla á ykkar börn á æfingum, það truflar einbeitingu þeirra og gerir þau taugaóstyrk.
Hvetjið liðið í heild
- ekki bara ykkar börn.
Látið aðeins jákvæð og hvetjandi orð frá ykkur fara á meðan leikur stendur
- þetta er bara leikur og ánægjan yfir því að taka þátt er númer eitt.
Hafið hvatninguna einfalda og almenna
- ekki reyna að fjarstýra börnunum frá hliðarlínunni, það ruglar þau bara.
Stuðlið að jákvæðum samskiptum við foreldra frá öðrum félögum
- rígur og metingur eiga ekki heima á þessum vettvangi.
Sýnið ekki mótherjum barnanna ykkar neikvætt viðhorf
- gagnkvæm virðing og kurteisi er hinn sanni íþróttaandi.
Hvetjið börnin bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs
- ekki gagnrýna þegar illa gengur. Hvetjið þau og uppörvið eftir tapleiki og klappið fyrir þeim þó leikurinn hafi ekki unnist.
Keppnisdagur er alltaf hátíðisdagur
- sama hvernig leikurinn fer, látum óhagstæð úrslit ekki spilla fyrir því.
Lítið á dómarann sem leiðbeinanda barnanna
- ekki gagnrýna ákvarðanir hans.
Spyrjið hvort leikurinn hafi verið skemmtilegur eða spennandi
- úrslitin eru ekki alltaf aðalatriðið.
Sýnið starfi félagsins virðingu
- verið virk á foreldrafundum þar sem umræður fara fram um starfsemina, þar er ykkar vettvangur.
Athugið hvort þið getið orðið að liði á einhvern hátt
- það eru foreldrar sem sjá um alla starfsemina í yngri flokkunum og þeir gætu þurft hjálparhönd - margar hendur gera verkið auðvelt.
Gerið ykkur grein fyrir því að það eru börnin ykkar sem eru að spila fótbolta
- ekki þið sjálf!
Góða skemmtun!
Þetta er tekið í heimildarleysi af síðunni hjá HK