22. október 2009 11:14

Badminton fyrir 16 ára og eldri

 

Badminton fyrir 16 ára og eldri.

 

Badmintontímar eru á þriðjudögum 20.55 til 22.00.

Verið velkomin og prófið skemmtilega íþrótt.

 

Badmintonspaðar  eru til láns og kúlur.

Það eru alltaf einhverjir reyndir badmintonspilarar sem geta leiðbeint nýjum badmintonspilurum.

 

Á laugardögum kl. 12.00 til 14.00 er svo opin tími fyrir alla, börn og fullorðnir.

Tilvalið að fjölskyldan spili þá saman.

 

Sjáumst.   Höfum gaman.         

 

            

 

meira...
1. september 2009 09:34

Heimsókn Trimmara frá Danmörku

Vikuna 12. - 18. september verður hópur trimmara frá Danmörku staddur hér á landi og hafa óskað eftir að spila við Skallagríms- og Akranestrimmara eitt kvöld á þessu tímabili. Fyrsta trimmaraæfing vetrarins er í kvöld og einungis 2 vikur til stefnu. Nú er bara að rífa upp spaðann og mæta.

meira...
31. ágúst 2009 11:33

Badmintonæfingar veturinn 2009 - 2010

Æfingar hefjast mánudaginn 31. ágúst. Þjálfari er Helgi Magnússon.

Æfingagjöld verða ekki innheimt fyrir september og eru allir hvattir til að koma og prófa. Æfingatímar í september sjáið þið á töflu hér fyrir neðan en tafla verður endurskoðuð í byrjun október. Á laugardögum verður sameiginlegur tími fyrir alla iðkendur og eru foreldrar hvattir til að mæta með yngstu iðkendunum.

 

Sláðu til! 

meira...
8. maí 2009 08:08

Fjármögnun fyrir badmintondeild Skallagríms.

Klukkan 11.00 á morgun verður farið í að tína rusl meðfram veginum frá Leikskólanum upp að afleggjaranum að Hesthúsunum og að Loft Orku.

 

 Mikilvæg fjármögnun.

 

Vonumst til að hitta sem flesta krakka og foreldra upp við Húsasmiðjuna kl. 11.00. Þar verða afhentir plastpokar.

 Ebba og Finnur verða þar.  Skipuleggja og aðstoða á alla lund.

 Við verðum með bíl og kerru og tökum pokana og annað stærra rusl upp í kerruna.

 

 Þetta á ekki að taka meira en tvo klukkutíma ef nógu margir koma. Margar hendur vinna létt verk.

 

Með von um góða þáttöku. Ebba og Finnur.

meira...
8. maí 2009 07:54

Siðasti æfingadagur og lokahóf.

                        Badmintondeild Skallagríms
                                    Síðasti æfingadagur

verður næsta föstudag 15 mai. kl. 16.40 hjá öllum, bæði eldri og yngri.

Kl.17.30 verður lokahófið í Skallagrímsgarði.
Afhendir verða viðurkenningar.
Grillaðar pylsur og gos handa öllum. 

Sjáumst hress
                                                                                                                    
Stjórn Badmintondeildar Skallagríms
 

meira...
6. apríl 2009 09:09

Getraunanumer fyrir umf. Skallagrím

 Minnum á félagsnúmerið okkar í getraunum. 310.

 

 Við erum með allt of litlar tekjur af getraunm miðað við önnur sambærileg  félög á landinu. Það er bara að muna eftir númerinu 310 og styrkja sitt félag í leiðinni.

Okkar skemmtun, okkar hagur.

meira...
1. apríl 2009 08:14

Æfingabúðir í badminton

 Æfingabúðir verða dagana 18 til 19 april í húsi TBR í Reykjavík. Árni Þór landsliðsþjálfari mun sjá um æfingarnar. Fara 2 unglingar frá badmintondeild Skallagríms. Hafa þetta verið afar lærdómsrikar og skemmtilegar æfingabúðir.

meira...
1. apríl 2009 08:04

Páskafrí.

 Siðasti æfingatími fyrir krakka og unglinga fyrir páska er næsta mánudag 6 april og fyrsti æfingadagur eftir páska er föstudagurinn 17 april.

meira...
1. apríl 2009 07:51

Vantar í stjórn Badmintondeildar

Það vantar gjaldkera og 1 meðstjórnanda í stjórn badmintondeildar Skallagríms.  Gjalkerastarfið er orðið mun einfaldara og auðveldara starf en hér áður fyrr. SPM sér um alla innheimtu. Þarf bara að setja upp nafnalistan sem er til á skrá hjá deildinni og halda utan um reikninga. Það væri afar gott ef einhverjir sjá sér fært um að starfa í stjórn badmintondeildarinnar. Fleiri hendur, fleira gert.

Kveðja. Ebba Pálsdóttir, formaður badmintondeildar Skallagríms

meira...
26. mars 2009 09:45

Meistarmót Íslands í Hafnarfirði helgina 27 til 29 mars.

Meistaramót Íslands verður í Hafnarfirði við Strandgötuna helgina 27 til 29 mars.

Meistarflokkur, A og B flokkur , Heiðursflokkur  og Æðstiflokkur.

Hvetjum við allt áhugafólk um badminton að fara og horfa á bestu spilara landsins.

Mótið byrjar kl. 17.00 á föstudaginn og kl. 10.00 á laugardaginn.

 Úslit verða spiluð á sunnudag og verða vöflur og kaffi í boði BH.

meira...
25. desember 2008 11:06

Komin ný síða

Sæl öll sömul

Ég hef verið að búa til nýja síðu á heimasiðunni, sem heitir "Skemmtileg myndbönd" sem inniheldur nokkra skemmtilega tengla inn á myndbönd sem þið gætuð skoðað. Myndböndin innihalda bæði fróðleika og skemmtun. :)

 

kv. Ebba 

meira...
23. nóvember 2008 08:20

Unglingamót KR B og C flokkur

Unglingamót KR  var sunnudaginn  23. nóvember 2008  einliðaleikir

8 krakkar fóru frá Borgarnesi og stóðu sig vel. Komu heim með nokkur verðlaun.

Bjarki Pétursson varð í 1 sæti 

Ísfold Grétarsdóttir varð í 1 sæti

Harpa Hilmisdóttir varð í 2 sæti

 

meira...
26. febrúar 2008 04:19
20. febrúar 2008 02:05
20. febrúar 2008 02:00
16. janúar 2007 06:37
Ungmennafélagið Skallagrímur | kennitala: 580269-6219 | Skallagrimur@skallagrimur.is | Böðvarsgata 1, 310 Borgarnes